Jæja langt síðan síðast...þá er ég kominn aftur á vopna minn og
er ánægður með það... Já suðurlandið heillaði mig og langar mig þar
að búa eins og segir í kvæðinu... Gaman var þarna suðurfrá...já við
lékium á alls oddi ég börnin og Birna.. Sund á morgnana ójá geggjað
fara svo að rúnta til rvk og versla og svo í mat á stokkseyri og
svo fórum við í geggjaða grill veislu hjá Ásrúnu og
Konna..jammey... jú jú við gerðum ýmisslegt og þar á meðal fór ég í
giftinguna hjá Mæju!!
jújú litla systir er orðin gift og er það bara mjög gott....
giftingin fór vel fram nema að sumir sem ég þekki gátu ekki hamið
sig og fór að hlægja þegar að presturinn byrjaði að tóna....humm
hver ætli hafi farið að hlægja... jæja allavega þá var þetta allt
flott og söng Hildur Vala tvö flott lög.....
Já Björn pabbi birnu er maður sem ég var að hitta í fyrsta
skipti og leyfði hann okkur að gista hjá sér meðan við dvöldum
þarna suðurfrá....
jæja ég er að fara að setja bensín á HNÖLLU og vekja REFÁN
síðan kerru aftan í HNÖLLU og sleði á og svo af stað andskotinn
hafi það....
Ýmsar pælingar um trúmál
Ef þú vaknaðir í morgunn og varst meira heilbrigður en þú varst
veikur, nýturðu meiri blessunar en sú milljón manna sem mun ekki
lifa út þessa viku.
Ef að þú hefur aldrei upplifað hættuna sem fylgir stríði,
einmanaleika þess sem er fangelsaður, sársaukann af pyntingum eða
hungurverki þess sem sveltur.... þá ertu betur staddur en 20
milljónir manna um heim allan.
Ef þú ferð í kirkju án þess að þurfa að óttast áreiti,
handtöku, pyntingar eða dauða.... þá nýtur þú meiri blessunar en
næstum því 3 milljónir jarðarbúa.
Ef þú átt mat í ískápnum, föt til að vera í , þak yfir höfuðið
og stað til að sofa á.... þá ertu ríkari en 75% jarðarbúa.
Ef þú átt pening í banka, í veskinu þínu og klink í krukku
einhversstaðar... þá ertu í 8% hópi af ríkustu mönnum heims.
Ef að foreldrar þínir eru ennþá giftir og á lífi... þá ertu mjög
sjaldgæft eintak.
Ef að þú gengur hnarreistur og brosandi og ert raunverulega
þakklátur... þá nýturðu blessunar – vegna þess að flestir geta
þetta en fæstir gera það.
Ef að þú getur haldið í höndina á einhverjum, faðmað hann
eða bara klappað honum á öxlina... þá nýturðu blessunar vegna þess
að þú getur boðið fram læknandi snertingu Guðs.
Ef að þú getur lesið þessi orð... þá nýturðu meiri
blessunar en þeir rúmlega 2 milljarðar jarðarbúa sem geta alls ekki
lesið. !!"
Þú nýtur fleiri blessana en þú munt kannski nokkurntíma vita af,
, Kristur minn, fyrir kraftinn þinn kóngur í himnahöllu, gefðu þann
vind á græðishind að gangi í lagi öllu."
ps ég er að fara að setj myndir af
Brúðkaupiinu og öðru kíkið á það....